Melur
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Nytsamar síður
Fjölmiðlar
10.01.2012 19:11:09 / melsari

Óveður er þetta

Komið þið blessuð og sæl og gleðilegt ár.
Hér er snjóbylur eins og á mörgum öðrum stöðum, húsin að fara á kaf í snjó og allt í ófærð. Búið að snjóa látlaust síðan í lok nóvember. Ég ætla nú ekkert að fara tala meira um veðrið og sný mér þá að kúnum.
Síðan í síðasta bloggi hafa 8 kýr borið, þar sem ég er á Hvanneyri þegar þetta er skrifað þá veit ég ekki hvort þessar tvær sem eiga tal núna séu bornar en þær voru orðnar nokkuð burðarlegar á sunnudaginn var.
Þessar hér eru s.s. bornar:
Sprauta 495 Örvarsdóttir 413(Þrumarason 04015) bar 10. des. og átti rauðsokkótta kvígu undan Síríusi 02032 og er því 7. lifandi fædda kvígan undan honum og heitir hún Slanga 613.
Sneið 496 Laskadóttir 00010 bar daginn eftir sprautu og átti hún kolskjöldótt naut undan Ára 04043 og fékk tuddi nafnið Fjandi 614.
Hlíð 480 Hlíðarsdóttir 06002 bar 22. des. og átti rauðsmáhuppótt naut undan Ára 04043 og fékk sá nafnið Skratti 615.
Þruma 487 Þollsdóttir 99008 bar síðan 28. des. og átti ljósrauðann/hvítsprengdann bola undan Rauð 04021, hann fékk nafnið Jón 616 og sýnist mér á honum að hann verði stórhníflóttur.
Elísabet 482 Ljótsdóttir 412(Grikksson 04004) bar 29. des og átti hún rauðhuppótta/leistótta kvígu undan Síríusi 02032 og er því 8. lifandi kvígan undan honum hér og hún heitir Gunna 617. Hún var á hvolfi og snéri öfugt og var því kallað á dýralækni.
Sægola 490 Frostadóttir 431(Rauðsson 04021) bar að morgni 30. des. og átti svart naut undan Skandal 03034 og heitir sá Myrkvi 618.
Táfýla 401 Depilsdóttir 03037 bar á miðdegi 30. des. og átti kolskjöldótta kvígu undan Grikk 04004 og heitir hún Hátíð 619.
Rauðka 486 Laskadóttir 00010 bar snemma á nýju ári og átti þar rauða kvígu undan Síríusi 02032 og er því 9. lifandi fædda kvígan undan honum og jafnframt sú síðasta. Fær hún nafnið Rjóð 620.

Þar sem ég gat ekkert sagt neitt hvernig 1.kálfs kvígurnar eru í síðasta bloggi ætla ég að gera það núna. Tek þær allar fyrir.
Framherja 507 Framherjadóttir 07022, sem heitir reyndar Sokka. Þetta er háfætt kýr með góðar útlögur, yfirlína nokkuð bein og malir örlítið hallandi en breiðar. Fótstaða örlítið þröng en bein. Skap er gott en hún rífur af sér vélina ef ekki er notuð sparkvörn. Júgur er nokkuð gott en spenar svolítið sitt á hvað og eru örlítið langir og þykkir. Mjólkurmagn: 19 kg/dag. Mjaltir mættu vera betri en meðal mjaltahraði er 1,6 l/mín.
Þrasa 511 Þrasadóttir 98052. Þetta er lágfætt kýr með fallegan skrokk. Yfirlína bein en er aðeins kúpt. Malir halla en eru nokkuð beinar. Fótstaða mjög góð. Skap gott en juðar svolítið fyrst þegar maður þvær hana en er annars fín. Júgurgerðin er góð og spenar alveg þokkalegir en kanski örlítið grannir. Mjólkurmagn: 19 kg/dag. Mjaltir mættu vera betri, meðal mj.hraði 1,8 l/mín.
Svakaleg 517 Svakadóttir 07020. Þetta er háfætt kýr með ekkert sérstaklega fallega skrokkbyggingu. Hún er eiginlega copy/paste af móður sinni(Þóra 452 Moladóttir 05015). Skap er ekki gott, sparkar fast af sér. Júgurgerðin ágæt en spenar þykkir og langir eins og hjá móðurini. Mjólkurmagn: 17 kg/dag. Mjaltir slæmar, meðal mj.hraði 1,0 l/mín.
Leifa 519 Klaufadóttir 07038. Þetta er lágfætt kýr með ágætis skrokkbyggingu. Yfirlína góð og malir góðar. Fótstaða mjög góð. Skap svona allt í lagi, juðar svolítið þegar verið er að þvo hana og þegar það er að tæmast úr henni. Júgurgerðin nokkuð góð og spenagerð líka en spenastaðan er ekki nógu góð. Mjólkurmagn: 23 kg/dag. Mjaltir örlítið seinar/mismjalta, meðal mj.hraði 1,7 l/mín.
Snara 520 Spottadóttir 01028. Þetta er meðal kýr á hæð og er með góða byggingu. Yfirlína bein og malir góðar, halla örlítið. Fótstaða góð. Skap í lagi en juðar þegar verið er að þvo hana. Júgurgerðin mjög góð en spenar misjafnir í lögun og stærð og vísa fram. Mjólkurmagn: 20 kg/dag. Mjaltir aðeins seinar, meðal mj.hraði 1,7 l/mín
Blokk 524 Húsadóttir 01001. Þetta er lágfætt kýr og með nokkuð góða byggingu. Yfirlína allt í lagi en er með of háan krossbeinskamb, malir ágætar. Fótstaða góð en örlítið þröng. Skap í lagi en juðar. Júgurgerði mjög góð og spenastaðan og gerðin líka en spenar langir og þykkir. Mjólkurmagn: 20 kg/dag. Mjaltir aðeins seinar, meðal mj.hraði 1,8 l/mín.
Gára 525 Gáradóttir 07031. Þetta er meðal kýr á hæð og með ágætis byggingu. Fótstaða mjög þröng. Skap er leiðinlegt, er svo sem í lagi þegar hún er þvegin en hún tjúllast þegar ca. 1-2 lítrar eru eftir í henni, hoppar alveg upp og niður með spörkum og látum. Júgurgerð ágæt en spenar langir, mjóir og vísa fram. Mjólkurmagn: 15 kg/dag. Mjaltir ekkert spes, meðal mj.hraði 1,5 l/mín.
Alfa 526 Alfonsdóttir 02008. Þetta er háfætt kýr með frábæra byggingu. Yfirlína góð og malir sömuleiðis. Fótstaða allt í lagi. Skap ágætt en reynir að rífa vélina af þegar fer að tæmast úr henni. Júgurgerð góð og spenar aðeins oddmjóir. Mjólkurmagn: 21 kg/dag. Mjaltir góðar, meðal mj.hraði 2,5 l/mín.
Sápa 527 Lagardóttir 07047. Þetta er meðal kýr á hæð og er bara með ágætis byggingu. Yfirlína góð og malir. Fótstaða góð. Skap gott. Júgur- og spenagerð góð. Mjólkurmagn 18 kg/dag. Mjaltir ágætar en er sein á einum spena vegna einhvers slyss á honum fyrir burðin, meðal mj.hraðinn er 1,4 l/mín en væri líklega yfir 2.
Krossa 528 Húfsdóttir 07049. Þetta er meðal kýr á hæð og er með góða skrokkbyggingu. yfirlína góð og einnig malir. Fótstaða góð. Skap er mjög slæmt, er sí sparkandi. Júgurgerð mjög góð og spenar góðir en vísa fram. Mjólkurmagn: 16 kg/dag. Mjaltir mættu vera betri, meðal mj.hraði 1,5 l/mín.
Herðubreið 530 Steinadóttir 449(Slánason 05007). Meðal kýr á hæð og með ágætis byggingu. Yfirlína í lagi en malir vísa upp. Fótstaða fremur þröng. Skap í lagi en reynir að rífa af sér. Júgurgerðin er góð en júgurbandið veikt, spenar langir og mjóir. Mjólkurmagn: 20 kg/dag. Mjaltir góðar, meðal mj.hraði 2,4 l/mín.
Hækja 531 Stafsdóttir 07034. Lágfætt kýr og með góða byggingu. Yfirlína góð og malir líka. Fótstaða aðeins þröng. Skap er ekki gott en samt svona í lagi. Júgurgerð góð en spenar litlir og mjóir. Mjólkurmagn 18 kg/dag. Mjaltir mjög slæmar, meðal mj.hraði 0,9 l/mín.

Mér sýnist á þessum hóp að 2007 nautin séu ekki að gefa nógu góðar mjaltir því allar sem eru undan þeim eru með verri mjaltir en mæðurnar. Skapið er nú breytilegt og tek ég eftir því að þær skap verstu eru undan Hersirssonum, Þollssyni og Laskasyni og skapbestu undan Fróðasyni og Laskasonum. Laski er því í báðum hópum.

Læt þetta duga í bili.

Ágúst

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2011 21:06:05 / melsari

Gleðilega hátíð


Gleðilega hátíð.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2011 15:07:52 / melsari

Förgun og burðir

Sæl öll

Nú er ég voða lítið búinn að vera heima við og hef því ekki mikið að segja en ætla þó á reyna.
Byrjum á föllnum kúm.
Í vikunni fóru 3 kýr í kaupstaðinn og ein fyrr í mánuðinum. Allar eiga þær það sameiginlegt að þær voru allar fallegar og miklar kýr en þar sem það er ekki hægt að halda endalaust í þær urðu þær að fara. Þetta eru þær Ára 438 Áradóttir 04043, Jurta 322 gamla Punktsdóttir 94032, Teyja 415 Kútsdóttir 04018 og Fönn 465 Bjúgnakrækisdóttir 05848.

   Jurta var gráhuppótt á litinn og hafði verið "gullið" í fjósinu í langann tíma og eru flestir hér á svæðinu sem þekktu hana(systkinabörn mín þá helst). Hún var orðin 8 ára og náði því ekki móður sinni (sem varð 9 ára) og ömmu sinni (sem varð 10 ára) í aldri. Hún átti 6 kálfa, 5 naut og eina kvígu(yngst af þeim). Við notuðum 2 naut undan henni á kvígur og kýr sem héldu ekki sæðingum og eitt naut fór á nautastöð en hann komst ekki í notkun. Hún var ávallt heilsuhraust, fékk aldrei súrdoða né fékk doða. Það sem varð henni að falli var júgurbólgan en þetta var í annað skiptið sem hún fékk hana á ævinni.
   Teyja var nautmóðir og er til undan henni boli á stöð sem ætti að koma í notkun eftir áramót eða þegar líður á vorið. Hún átti 3 naut af 3 kálfum. Hún steig á spena nú í byrjun nóvember með tilheyrandi júgurbólgu vandamáli en þetta var ekki fyrsta skiptið sem hún steig á spena en varð hennar síðasta. Henni var fargað út af þessu. Hún var systir hans Frey 09063 sem var í dreyfingu.
  Fönn var mjög falleg kýr með mjög góða júgur og spenagerð, spenarnir hæfilega langir en hún náði að stíga á einn sem varð til þess að hann stíflaðist. Henni var fargað út af því. Hún var líka falleg á litin, var bara með kolótt í kringum augun, út á kinn en allt annað var hvítt.
Ára fór í byrjun nóvember vegna fósturláts og júgurbólgu. Hún var mjög góð í alla staði.

En þá að burðum.
Hækja 531 Stafsdóttir 07037 bar 11.11.11. og átti rauðskjöldóttan bola undan Stubb 09017. Hún er mjög fastmjólka og á ég því ekki von á að hún verði til lengi en hún er með góða júgur gerð en spenar eru pínu litlir og mjóir.

Krossa 528 Húfsdóttir 07049 bar 14.11. og átti ljósrauðbrandhuppóttan bola undan Merkúr 09009. Krossa er nú svolítið ill í skapinu eða síðast þegar ég mjólkaði, mjaltir ekkert sérstakar en júgurgerð er góð og spenar allt í lagi.

Reyna 494 Dynjandadóttir 06024 bar 24. nóv. og átti rauða, smáhuppótta kvígu undan Síríusi 02032 og hefur hún fengið nafnið Edda 609 og er sjöunda Síríusdóttirin.

Svakaleg 517 Svakadóttir 07020 bar 25.nóv og átti rauða kvígu undan heimanautinu Góa 510(Góu 442 og Lykilsson 02003), fær hún númerið 610 en hún hefur ekki fengið neitt nafn svo ég viti til.

Ólöf 456 Halla Reynisdóttir bar 27. nóv og átti brandskjöldótta kvígu undan Ára 04043
og verður númer 611.

Snara 520 Spottadóttir 01028 bar 27.nóv og átti rauða kvígu undan Góa 510 og fær hún nafnið Snerpa 612.

Alfa 526 Alfonsdóttir 02008 bar 27. nóv. og átti rauðann bola undan Bolta 09021.

Sápa 527 Lagardóttir 07047 bar 27. nóv. og átti rauðann bola undan Góa 510 en gæti alveg verið undan honum Jónsa 09041.

Nú er bara smá bið í að næstu beri.

Ætla ekki að hafa þetta lengra.
Sæl að sinni.

Ágúst



» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2011 15:07:30 / melsari

Endalaus rigningartíð!

Sælinú

Það er meiri þessi rigningartíð, búið að vera rigning hér hvern einasta dag í haust að ekki hefur verið hægt að binda hálminn í rúllur.

Nú er verið að vinna í fjárhús hlöðuni, setja nýjar mottur, setja plast og lengja aðeins svo hægt væri að koma öllu fénu inn. Það var skipt um mottu og settt plast á einni krónni í fyrra haust og var það vel til bóta enda hefur þurft að laga hverja einustu mottu á hverju ári. Búð er að taka inn gemlingana og þær veturgömlu en hinar gömlu eru ennþá úti í rigninguni.

Það var loks náð kvígunum. Þær voru reknar heim í fjósið á Álftá þar sem fengnu kvígurnar voru teknar heim en þær yngri fengu að vera þar áfram, þar til fjóshlaðan verði tilbúin þ.e.a.s. ef Loft-Orka byrjar einhvern tíman að steypa en mánuður er síðan þeir ætluðu að byrja.
Þær náðust samt ekki allar en fjórar urðu eftir og allar bornar en einn kálfurinn náðist heim með hinum. Farið var að ná þeim fyrir tveimur vikum og fannst ein kvígan en hún var dauð og kálfurinn lá dauður hjá henni. Í síðustu viku var farin önnur ferð og náðist þá ein kvígan ásamt kálfinum. Um helgina var svo farið enn eina ferðina en þessar tvær sem eftir voru voru komnar heim í hraun, önnur var reyndar komin inn í skógræktargirðinguna og tók lang mestan tíma að ná henni enda alltaf verið taugaveikluð og snargeðveik er svo má að orði komast.

En nú er komið frá því að segja hverjar séu bornar, tek þær kvígur líka með sem ég er búinn að nefna og byrja á þeim.
Framsókn 508 Framherjadóttir 07022 bar líklega í lok september nautkálfi, bröndóttum undan Jarli 09039. Hún fannst dauð ásamt kálfinum.
Lykkja 518 Spottadóttir 01028 bar líklega í byrjun október og átti rauðann bola undan Gylli 03007. Lykkja náðist um helgina eftir mikla leit en kálfurinn náðist með kvíguhópnum í lok október. Lykkja er ekki eiguleg og fer sem fyrst í sláturhús vegna skapgalla.
Leifa 519 Klaufadóttir 07038 hefur borið á svipuðum tíma og Lykkja og átti rauðgrönótt naut undan Rauðgrana 09034. Leifa er alveg í lagi, með ágætar mjaltir og góð í skapi, með góða júgurgerð og allt í lagi spena, reyndar frekar stuttir og mjóir, en hún fer ekki hátt í nyt enda hefur sína ástæðu til þess.
Gára 525 Gáradóttir 07031 hefur borið á svipuðum tíma og hinar. Hún átti rauðhuppóttan bola undan Rauðgrana 09034. Gára er frekar ljót að sjá enda nýkomin til byggða, náðist um helgina. Júgurgerðin er slöpp og spenar langir og mjóir, skap allt í lagi, það á síðan eftir að koma í ljós hvernig mjaltirnar verða en í fyrstu mjöltum hjá henni komu bara 0,3 lítrar en næstu 1 líter og fer alltaf aðeins hækkandi.
Dimmalimm 445 Þinsdóttir 04006 bar 22.október og átti rautt naut undan Skandal 03034, alveg rosalega háfættur. Þetta verður hennar síðasta mjaltaskeið vegna þess hve slæm hún er í löppunum, hún hefur alltaf verið mjög fljótmjólka og góð í skapinu en hún hefur ekki farið neitt sérstaklega hátt í nyt og hefur alltaf verið meðalkýr hvað nyt varðar.
Trítla 462 Bjúgnakrækisdóttir bar 27. október og átti rauða dauða kvígu undan Síríusi 02032, eina kvígan sem fæðst hefur í haust. Trítla er alltaf að bæta sig en hún nær samt ekki móður sinni í afurðum (Venus 402).
Blokk Húsadóttir 01001 bar 31.október og átti rauðgrönótt naut undan Rauðgrana 09034. Blokk er með ívið betri júgur og spena gerð en alsystur hennar þær Tvista 499 og Tvenna 500, en hún er frekar smá og er minni en þær.
Herðubreið 530 bar 4. nóvember og átti svart skjöldótt naut undan Silfra 09004. Þarna hefði mátt koma grá kvíga. Herðubreið er með mjög góða júgurgerð en spenar eru heldur í lengri kantinum, mjaltir eru ágætar enn sem komið er og skap er alveg svaka gott.
Munkafríða 466 Gauksdóttir 05027 bar 5.nóvember og kom þar með kolótt naut undan Rauð 04021. Hún virðist róast með árunum og er orðin svona ásættanleg í skapi. Ég veit nú ekki hvort maður ætti að setja hana á aftur vegna þess að hún hefur verið að fá júgurbólgu upp úr þurru og er ekki mjög traust í skapi.

Nú hafa tvær kýr verið að leika sér við það að stíga á spenana, Teyja 415 og Fönn 465. Þetta er hátt í 8. sinn sem Teyja stígur á spenana með tilheyrandi júgurbólgu. Fönn hefur hinsvegar aldrei áður stígið á spena né fengið júgurbólgu áður svo það var alveg tilvalið fyrir hana að prófa þetta, það tókst líka það vel að hún tætti spenan í klessu svo hún verður bara mjólkuð á þremur..

Ég bætti við nýju albúmi sem heitir Ýmsar úti myndir.

Lifið heil.

Ágúst



» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2011 23:01:35 / melsari

Blogg

Sæl verið þið

Nú er rollurag búið að mestu og farin eru 196 lömb í sláturhús. Vigtin og flokkunin er heldur lélegri í fyrra og önnur undanfarin ár. Í ár(í fyrra) var fallþunginn 16,0(17,1), gerðin 8,63(9,76) og fitan 6,21(7,1). Það þarf nú samt ekki að fara nema 4 ár aftur í tíman til að fá svipað lélegt ár og var nú.

Kornið er nú allt komið í korngeymslurnar og var uppskeran með minna móti. Ein geymslan er hálf, önnur með botnfylli og sú þriðja er tóm(eins og svo oftast).

Nú er komið að kúnum blessuðum.
Kýrnar eru ný farnar að vera inni og fara ekkert út meir þetta árið.
Nokkrar kvígur hafa borið síðan síðast og ein kýrin látið.
Þrasa 511 Þrasadóttir 98052 bar 27. sept. og átti rauðskjöldóttan, mikið hvítan bola undan Jarli 09039. Burður gekk ekki sérstaklega vel því kýrin er svo lítil en kálfurinn er sjálfur peð líka. Hann þrífst ágætlega og dafnar vel en hálsinn snýr aðeins til hægri og hausinn hallar aðeins til hægri líka. Mér líst bara mjög vel á hana Þrösu vegna þess hve róleg og yfirveguð hún er og að júgur- og spenagerðin og staðsettning spena er mjög góð. Hún er að vísu örlítið sein að mjólka eða 5-6 mín með 8-12 lítra í mál.
Það eru fleiri kvígur bornar en það hefur gengið illa að ná kvígunum heim, þar sem þær hafa komið sér eins langt frá bænum og þær geta. Það stækkaði óvænt svæðið sem þær hafa til að valsa um. Einhver hefur s.s. tekið eina girðinguna niður þannig þær gátu komið sér yfir, hinu megin við Syðri Fljótin.
Þetta eru 19 kvígur af 28 ásamt 3-4 kálfum en þrjár kvígur í þessum hóp eru bornar en næstu af þeim eiga bera í byrjun nóvember.
Eins og áður hefur komið fram lét ein kýrin, við höfum nú ekki fundið neitt fóstur en hún veiktist skyndilega einn votviðrisdaginn og mjókkaði talsvert, mjólkaði ekki nema svona nokkra ml í einhverja daga áður en það fór að koma broddur úr henni. Nú er hún farin að mjólka aðeins meira og er orðin mun hressari og hætt að skila frá sér blóðleytu slími að aftan. Þessi kýr er auðvitað ein af okkar betri kúm þó hún sé undan Stígssyni, þetta er hún Ára 438 Áradóttir 04043 sem um er rætt.
Það fóru einnig 2 kýr í kaupstaðinn. Báðar voru þær undan heimanautum og hvorug þeirra hélt, þetta voru þær Alda 426 Lávarðsdóttir (Aðalssonur 02039) og Auðhumla 464 Bjúgnakrækisdóttir (Hvinssonur 03032).

Þetta er allt í klessu hjá mér núna, þið verðið bara að afsaka það og vil ég benda á það eru nýjar myndir í nokkrum albúmum.

Ágúst


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2011 11:24:44 / melsari

Aftur árás á síðuna!!

Sæl verið þið.
Mér sýnist ég verða  læsa síðuni aftur í óákveðinn tíma því það eru að koma aftur svona bull komment við bloggin. Ég læt síðuna standa opna í einhverja daga áður en ég læsi henni og þá er gott að vera búinn að skrifa lykilorðið niður eða leggja það á minnið.
Lykilorð er: kusa

Kv.
Ágúst


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2011 14:42:30 / melsari

Kúablogg

Sæl öll

Hér hafa fjórar kýr og kvígur borið síðan síðast.
Góa 442 Þverteinsdóttir 97032 bar 14. ágúst og átti þar rauða kvígu undan Stássa 04024 og hún fékk nafnið Stássa 598. Góa verður líklega ekki haldið aftur þar sem júgrað er orðið svo stórt og slitið að það er varla hægt að mjólka hana, hún er að mjólka hátt í 40 kíló á dag.
Linda 474 Bjúgnakrækisdóttir 05848 (Hvinssonur 03032) bar 18. ágúst og átti rauðan bola undan Jaki 04044 og hlaut hann nafnið Gvendur (Jaki). Linda fór nú ekki hátt í nyt á fyrsta kálfi því hún átti þá tvo nautkálfa en hún virðist ætla að mjólka núna þó hún sé ekki í 30 kílóum á dag.
Kvígan Framherja 507 Framherjadóttir 07022 (gengur undir öðru nafni, Sokka, hjá sumum) bar í kringum 20. ágúst en hún bar úti en kálfurinn er ekki enn fundinn og er líklega dauður, sá kálfur var undan Silfra 09004. Framherja er með verri júgur og spenagerð en móðir hennar, Kola 447, og er líka með aðeins slakari mjaltir en hún. Skap hans hinsvegar ágætt enn og er því bara eins og móðirin. Það eina sem hún hefur framyfir móður sína er skrokk byggingin sem er mjög góð, svo er hún líka mjög háfætt. Set mynd af júgri fyrir neðan.
Hvítkolla 453 Þengilsdóttir 05022 bar í gær, 04. september og átti dökk brandkrossóttan bola undan Bolta 09021 og hefur hann hlotið nafnið Krossari 600. Ég hef aldrei séð jafn stóran kálf og hann, en hann nær mér upp að mitti. Hvítkolla verður ekki sett á aftur vegna skap-, spena- og mjaltagalla.

Hér er júgrað á Framherju 507. Eins og sést þá er hún með millispena en þann galla fær hún frá móður sinni.

Hér eru svo þær mæðgur, Framherja 507 t.v. og Kola 447 t.h.

Nú bíður maður bara eftir að næstu beri en það verður í byrjun október, þá bera 3 kvígur.

Læt þetta gott heita.

Ágúst


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.08.2011 15:00:00 / melsari

Burðir og fleira

Sæl öll

Nú hafa kýrnar verið að bera hver á fætur annari.
Þetta eru þær:
Jurta 322 Punktsdóttir 94032 sem bar 13. júlí og átti ljósrauða/hvítsprengda kvígu undan Síríusi 02032 og hefur hún fengið nafnið Planta 593. Þetta er fyrsta kvígan undan Jurtu en hún hefur átt 5 naut. Nú eigum við 5 kvígur undan honum Síríusi en 5 kálfar eru enn ófæddir undan honum. Ég viðurkenni að hann var ofnotaður hér, skráðar eru 39 sæðingar með honum og fæddir kálfar eru 12 þannig það koma 17 kálfar undan honum í allt.
Þóra 452 Moladóttir 05015 bar 19. júlí og átti kolótt naut undan Silfra 09004 sem hefur fengið nafnið Þórður 594. Ég er feginn því að hún átti ekki enn eina kvíguna því hún mjólkar mjög lítið og er með slæmar mjaltir.
Huppa 475 Bjúgnakrækisdóttir(hn) bar 29. júlí og átti þar alsvart naut undan Vegbúa 08058 en hann fékk nafnið Huppur 595.
Belinda 29 bar 05. ágúst og átti kolótt naut undan Stássa 04024 og fær hann nafnið Kolur 596.
Búkolla 186 bar sama dag og Belinda(reyndar á undan) og átti hún brandsokkótta/smáhuppótta kvígu undan Salómon 04009 og fékk hún nafnið Sallý 597.

Nú er bara bið í að Góa 442 Þverteinsdóttir beri en hún á tal eftir 4 daga. Við áttum að láta ráðunaut vita ef hún átti bola en mér sýnist að við ættum að sleppa því þar sem júgurbandið slitnaði niður þegar við vorum að gelda hana og er því ekki lengur áhugaverð til ræktunar í sameigilegt ræktunarstarf. Hún er móðursystir Freyr 09063 og móðir hennar var móðursystir Jónsa 09041.

Þrír gripir hafa hvatt þennan heim og fóru í þetta sinn nautin Gói 510, sonur Góu 442 og Lykils 02003 og var notaður lítilega á kvígur héldu illa við sæðingum og Tvífari 512 Náttfarason 00035. Kýrin Andrésína 463 Gauksdóttir 05027 fór líka en hún fór vegna júgurbólgu af völdum spenastigs.

Það fjölgaði í bústofninum hjá þeim á Mel en þau fengu sér hænsnakofa og fjórar hænur.


Ég hef verið að setja inn myndir af kúnum og kálfum og mun halda því áfram þó að ég bloggi ekki mikið.

Sæl að sinni

Ágúst




» 7 hafa sagt sína skoðun

08.07.2011 09:06:12 / melsari

Sláttur hafinn

Sæl öll

Nú er sláttur hafinn en það er ekki mikið á hverju túni. Stykkin öll eru slegin og rúlluð og 9. flötin líka. Það var rúllað því í dag. Ég kom ekki nálægt þessu núna enda aðgerð á morgun og þá er vonandi að maður lagist einhvað.

Kýrnar eru farnar að fara út en þær fóru fyrst út 21. júní sem er óvenju seint enda var engin gróður komin. Þær voru að venju glaðar að komast út.

Tvær kýr hafa borið síðan síðast.
Fönn 465 (f. hn) bar 9.júní og átti rauðhuppóttan bola undan gráa heimanautinu Stjarna 492 og er hann síðasti kálfurinn sem fæðist undan honum. Hlaut tuddi nafnið Bergur 591.
Kola 447 Áradóttir 04043 bar 26. júní og átti brandsokkótta kvígu undan Síríusi 02032 og hefur hún fengið nafnið Sirrý. Þess má geta að þetta er önnur kvíga Kolu undan Síríusi.
Næsta sem ber er hún Jurta 322 gamla Punktsdóttir 94032 en hún á tal þann 19. júní en mér sýnist að hún beri fyrr.

Svo hafa tveir gripir farið á vit feðra sinna en það eru mæðginin Maístjarna Lykilsdóttir 02003 og sonur hennar Korkur 509 Kappason 01031. Korkur var reyndar staðsettur á öðrum bæ hér í sveitini, Skiphyl, og ég vona að hann hafi gert sitt gagn þar þó að það sé best að nota sæðingar á kvígur og bara alla gripi (ótrúlegt en satt, þá er ég búinn að sætta mig við það).

Friðrik og Lena komu 21. júní  og skoðuðu þær 4 kvígur sem átti eftir að dæma. Í þeim hóp fengu tvær 86 stig, hinar 81 og 80 stig. Þær Góðanótt 491 Náttfaradóttir 00035 og Tvista 499 Húsadóttir 01001 fengu 86 stigin. Tvista fékk reyndar of háa einkun fyrir spena að mínu mati því öðru megin eru spenarnir stórir og klunnalegir en hinu megin bara nokkuð vel gerðir en hún var reyndar dæmd þeim megin.
Fylgja 498 Hjarðadóttir 06029 fékk 81 stig og tvíburasystir Tvistu, hún Tvenna 500 fékk 80 stig.

Ég held að ég skrifi ekkert meira fyrr en einhvern tíman í ágúst, en það kemur bara í ljós hvernig það fer en ég reyni að bæta við myndum sem ég hef verið að taka.

Bless á meðan.

Ágúst



» 10 hafa sagt sína skoðun

05.06.2011 22:37:58 / melsari

Fróðleikur og fréttir

Sæl öll

Nú fer að verða mánuður síðan ég skrifaði hér síðast, þetta er ekkert að ganga hjá mér en ég ætla að bæta það með þessari færslu.

Ærnar eru flestallar bornar en enn eru 3 eftir og það eru einhverjir dagar í það.

Það er búið að vera skítakuldi hérna en allt er þó farið af stað, allt orðið grænt sem grænkað getur.

Kvígurnar fengu loks að fara út, þótt fyrr hefði verið, enda voru þær kátar að komast út. Það gekk ágætlega að reka þær á sinn stað, suður í hraun, til að byrja með en þegar komið var að hliðinu tvístraðist hópurinn, sumar fóru rétta leið gegnum hliðið meðan aðrar gengu framhjá því og inn í réttina(hliðið er í horni, hliðin hjá réttini). Við gátum rekið þær úr henni en þær neituðu að fara í gegnum þetta hlið svo við þurftum að gjöra svo vel að reka þær að næsta hliði sem er rúmum 700 m frá.

Stórhosa 419 Salómonsdóttir 04009 bar 12. maí og átti rauðann dauðann bolakálf undan heimanautinu Stjarna 492. Stórhosa ætlar ekkert að vera skárri þetta mjaltaskeið frekar en venjulega.
Ein kýr hefur farið síðan síðast og fjögur naut.
Þessi kýr er engin önnur en Sigga Setta 391 Öðlingsdóttir 03002 en hún fór vegna spenastigs og júgurbólgu. Sigga Setta var keypt frá Hraunholtum í Kolbeinsstaðahrepp, aðeins 2ja daga gömul, lok nóvember árið 2005. Þá vorum við nýbúin að lóga tveimur af betri kúnum þar sem þær stóðu aldrei aftur upp eftir burðin, báru semsagt með eins dags millibili og lágu hlið við hlið, þær voru nánast alltaf saman og virtust vera miklar "vinkusur". Sigga Setta varð því að vera jafn góð og þær sem hún og gerði.
Sigga Setta var síðasta kýrin úr sínum árgangi hér á bæ sem sínir það hvað 2005 árgangurinn var lélegur eða endtist ekki nógu vel.
Þær voru 17 úr þessum árgangi, þrjár drápust eða var fargað þegar þær voru enn bara óbornar kvígur. Helmingurinn var komin út af Soldán (þær 14 sem báru), ein undan honum sjálfum, 3 undan sæðingsnautum, sonum hans(Mjölnir 03017, Rex 03023 og Hvinur 03032) og aðrar þrjár undan heimanauti undan honum. Hinar, fjórar voru aðkeyptar, allar undan óskráðum heimanautum, ein undan Brekkan 03004 (Punktssonur 94032), ein undan Fleyg 02031 (Kaðalssonur 94017) og svo hún Sigga undan Öðilingi 03002 (Túnasonur 95024).
Svo er víst að koma í notkun aftur naut úr árgangi 2005 en mér persónulega líst ekkert á þann hóp, fimm naut eru að fara í dreifingu en við áttum kýr undan 2 þeirra, þeim Hrygg 05008 og Renning 05015. Hryggsdóttirin var svosem ágætis kýr en mjaltir og júgurgerðin voru gallarnir, þó hafði hún skárra júgur en móðirin en mjaltirnar voru mikið verri. Skapið í henni var allt í lagi og svo var hún líka mjög háfætt sem var kostur en hún fékk ekki nema 75 stig enda fyrrgreindir gallar sem drógu hana niður.
Tvær voru til undan honum Renningi 05014 en þær endtust ekki lengi vegna mikils skapgalla og slæmra mjalta, mæður þeirra beggja voru góðar í mjöltum en skapið var nú ekki það besta alltaf, móðir aðra þeirra og amma hinnar voru systur(undan sömu kú) þannig ég er ekki hissa að þessar systur hafi verið líkar. Kanski maður taki áhættuna og noti hann allavega einu sinni aftur og sjá hvernig það fer.

Ég bætti inn albúmi fyrir nokkru sem heitir Kvígur '11 þar er hægt að skoða þessar kvígur sem fóru út um dagin.

Svo virðist að það sé eitthvað meiri háttar að þessari síðu hjá mér því það hrúgast inn einhver bull komment og bull í gestabókina svo ég bið síðugesti um að vera ekki mikið að athuga þetta. En ég ætla að læsa síðunni í einhverja daga vegna þess, eftir fáeina daga þannig að fastagestir fá hér lykilorðið beint í æð ef svo má að orði komast, þannig nú er um að gera að skrifa það niður á blað eða leggja á minnið, ef fólk hefur áhuga að fylgjast áfram með.
En hér kemur það
Lykilorð: kleppur

Nú er nóg komið að "blaðri" í bili.

Ágúst


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.05.2011 22:27:49 / melsari

Burðir og fleira

Sæl öll sömul

Nú er réttast að reyna að bæta upp þessa bloggleti í mér og fara blogga.

Sauðburðurinn er búinn að ná hámarki og er nú farin úr 13 kindur á sólarhring í 5 kindur. Það eru um 40 sem eiga eftir að bera og bera því vonandi allar núna á næstu dögum.

Úr fjósinu er þetta að frétta.
Tvær 1. kálfskvígur hafa hvatt þennan heim síðan síðast, þær eru:
Stjörnunótt 503 Náttfaradóttir 00035, henni var lógað vegna þess að hún var orðin svo veik af júgurbólgu, var komin með í alla, var mjög fastmjólka og leiðinleg.
Thelma 488 Hersirsdóttir 97033, hún fór í kaupstaðinn í dag vegna júgurbólgu í báðum framspenum, við vorum hætt að mjólka annan þeirra. Hún var líka fastmjólka og seldi illa svo var hún heldur ekkert skemmtileg í skapinu á meðan mjöltum stóð en hún var ljúf sem lamb utan mjalta tímann.
Það er alltaf best að losa sig við svona vandræða gripi sem fyrst, svona seinmjólka skapgalla gripi sem fá alltaf júgurbólgu.
Það hefur verið mikið um spenastig í fjósinu núna og eru það bara „bestu“ kýrnar sem stíga á spenana. Ég sagði frá því í síðasta bloggi að Teyja 415 hafði stigið á spena en nú hafa tvær bæst í hópinn, þær Sigga Setta 391 Öðlingsdóttir 03002 og Lísa 444 undan Túnasyni. Sigga Setta steig á framspena og stíflaði svo það kom júgurbólga en hún var  þríspena fyrir svo nú er hún eiginlega tvíspena, hún átti að fara í kaupstaðinn en þar sem að hún er með nuddsár aftan á hálsinum sem grefur úr fékk hún að sleppa í þetta sinn. Lísa þurfti endilega að stíga á H/A spenann og stífla hann þannig nú er hún með júgbólgu í þeim júgurhluta en hún er auðvitað að mjólka mest af öllum kúnum og er búin að fara svolítið yfir 40 lítrana á dag.
Þá að kúaburðum.
Tvær hafa borið síðan síðast
Skata 446 Glannadóttir 98026 bar 4. maí og átti rauðskjöldótt naut undan Skandal 03034, hann hefur fengið nafnið Hákarl 589.
Andrésína 463 Gauksdóttir 05027 bar 5. maí og átti hún kærkomna grákrossótta kvígu undan Stjarna 492 og hefur hún fengið nafnið Andrea 590. Andrésína var búin að vera geld í rúma 4 mánuði svo hún verður að mjólka vel þetta mjaltaskeið en hún var mjólkuð í fyrsta skiptið saman við í dag og fengust úr henni 27 lítrar svo það er von á góðu, hún er reyndar með mjög smátt júgur og er sjálf alveg gríðarlega stór svo júgrað á henni sýnist kanski vera smátt.
Nú bíður maður eftir gráu kvígunni undan Stórhosu ;) en hún átti tal fyrir 8 dögum en er ekki borin enn, júgrað á henni er orðið alveg svakalegt og spenarnir líka.



Jarðvinnslan er líka hafin en ég hef ekkert komið nálægt henni þar sem ég er enn slæmur eftir þetta brjósklos og get ekki setið lengi í einu svo öll traktora vinna er út hjá mér.

Jæja, nú er ég hættur í bili.

Ágúst



» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2011 02:00:49 / melsari

Sauðburður hafinn og allt á fullt

Komið þið sæl

Hér er sauðburður hafinn og hófst hann þann 16. apríl þegar mórauði Þverholtagemsinn Skógardís bar og átti tvo mórauða hrúta, þeir lifðu ekki lengi og voru dauðir daginn eftir, en þá bar annar mórauður Þverholtagemsi, Mjóna að nafni, og átti hún einn mórauðann hrút. Hann náði að lifa einum degi lengur en hinir en drapst þá 19. apríl. Skógardís var hent samanvið gelddraslið út en það var vanið undir Mjónu annað lamb sem við fengum frá Kálfalæk.
Sauðburður byrjaði því illa en þann 20. apríl virtist allt fara ganga betur en þá báru tveir hvítir gemsar frá okkur sem báðar áttu hvíta gimbur hvor en síðan þá hafa 18 kindur borið og allt gengið eins og í sögu. Ein þrílemban er borin en hún kom með eitt auka lamb þannig hún varð fjórlembd.
Lömbin sem hafa verið að fæðast síðustu daga hafa verið allavega á litin og mjög skrautleg enda fengum við lánaðan í 5 daga í vetur, verðlauna hrútinn Glæsi sem Eyvindur frændi í Tröð hefur ræktað en hann er svarthosóttur með krúnu.

Læt nú fylgja mynd af lambakóngunum þó þeir séu ekki lengur meðal oss.

En þá að kúnum.
Kýrnar eru flestar að mjólka á bilinu 20-30 lítra á dag en Venus 402 og Teyja 415 eru að mjólka um 36 lítra á dag og Lísa 444 er að mjólka 40 lítra á dag sem þykir mjög gott hér á bæ. Teyja 415 hefur að vísu seinkað svolítið mjöltum hjá sér með því að stíga á spenaopið á HA spena en hún er orðin ansi sein í mjöltum vegna endalausra spenastiga, þegar hún var á fyrsta kálfi var hún nokkuð fljót í mjöltum en fór síðan að stíga á spenana. Hún er því núna 10-13 mínútur að mjólkast.
Lísa 444 er mjög fljót að mjólkast en það tekur hana ekki nema 4 mínútur +/- að mjólkast.
Adrésína 463 er enn óborin en hún er komin 12 daga framyfir ef maður tekur mið á sæðingu, en annars á hún þá tal eftir 8 daga og kálfurinn þá undan heimanauti en ég skellti Stjarna 492, gráa tuddanum undan Lísu á hana síðasta sumar en hann náði að stökkva einu sinni á hana en ég var ekki viss hvort hann hafði hitt en svo virðist vera að hann hafi hitt, en það var nenfilega þannig að hún var svo stressuð á að komast út því allar hinar kýrnar voru komnar út, að hún lét öllum illum látum meðan hann var að reyna sinna sínu, en hún rauk af básnum eftir að hann hafði stökkið einu sinni og hljóp síðan út. Ég náði þá að stöðva bolan svo hann hefði ekki farið út líka en hann var líka svo rólegur að það var ekki erfitt að stoppa hann og snúa honum aftur inn í stíuna.
En næsta sem ber er Stórhosa 419 en hún á tal eftir 5 daga og kálfurinn þá undan Stjarna líka.

Ég set inn nýtt myndaalbúm seinna með sauðburðinum en ég hef verið að setja inn nýjar myndir í hin ýmsu myndaalbúm og því um að gera að kíkja á nokkrar myndir.

Jæja, út að kíkja á kindurnar.

Ágúst




» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2011 14:05:55 / melsari

Blogg

Sæl öll

Það hefur nú mest lítið gerst síðan síðast.
En byrjum á kúnum.
Það hefur fækkað um þrjár kýr síðan síðast en það voru þær Hekla 183 sem fór vegna júgurbólgu, Kotasæla 476 vegna skapgalla, mjaltagalla, spenagalla og júgurgalla og Skoruvík 454 vegna skapgalla, spenagalla, mjaltagalla og spenastigs.
Eins hafa þrjár kýr og kvígur borið síðan síðast
Kvígan Stjörnunótt 503 Náttfaradóttir bar fyrst þann 21. mars og átti bröndótta kvígu undan gráa heimanautinu Stjarna 492, hún hefur fengið nafnið Skræfa 588. Stjörnunótt er strax komin á svartalistann vegna mjög slæmra mjalta en meðalflæðið fer ekki upp í 1,0 kg/mín. hún er að mjólka svona 10-12 lítra í mál. Hægri aftur speninn á henni laskaðist vegna þess hve lengi mjaltavélin hangir á honum.
Kombína 432 Glannadóttir 98026 átti sinn þriðja kálf þann 24. mars en þar kom rauð kvíga undan Gylli 03007 en hún kom afturábak og drapst því í fæðingu, hinir kálfarnir hennar Kombínu drápust líka í fæðingu.
Framtíð 470 Framadóttir 05034 bar 04. apríl og átti kolskjöldótt naut undan Skjanna 02030 en hann fór í sláturhús strax.
Þá er það hún Andrésína 463 Gauksdóttir 05027 (systir Kombínu) sem ber næst en hún á tal eftir 9 daga, hún hefur staðið geld í fjóra mánuði.


Þá aðeins út í fjárhús.
Sauðburður fer bráðum að skella á en hann byrjað svona um miðjan mánuðinn. Það eru 13 fleirlembdar og 5 af þeim eru komnar út af sömu rolluni, henni Lukku 98-322 sem var mjög oft fleirlembd og átti 21 lamb á 7 árum. Ein dóttir Lukku sem er enn á lífi er í sitt fjórða skiptið fjórlemd en hún eignast sitt 22 lamb í vor en ég efast um að hún lifi þetta af því hún er orðin svo slæm í fótunum en þetta er hún Klukka 04-016. Ferna 03-044, dóttir Lukku ber sínu 24 lambi núna í vor en það er sama sagan með hana og Klukku að hún er orðin slæm á fótum en er þó hressari er Klukka. Ferna og Klukka eru síðustu dætur Lukku en báðar eru á sínu síðasta.

Gott í bili.

Ágúst


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2011 13:44:07 / melsari

Blogg

Sæl öll

Þetta verður að öllum líkindum stutt blogg hjá mér nú en allt fer eftir því hvað mér dettur í hug að skrifa hér inn.

Hér hefur ein borið síðan síðast en það er hún Lísa 444 (f. hn. undan Túna 95024). Hún bar 04. mars og átti rauðskjöldótta kvígu undan Síríusi 02032 og hefur hún fengið nafnið Marsibil 587.
Nú bíður maður eftir því að þær Kombína 432 og Stjörnunótt 503 beri en þær eru komnar 4 og 2 dögum framyfir tal.
Það eru einhverjir dagar í að Kombína ber en Stjörnunótt, sem er að fara bera sínum fyrsta kálfi, er farin að stálma svo svakalega að mér líst ekki lengur á þetta.

Það eru 40 mjólkandi núna þannig að allir básar eru fullir en þær eru nokkuð margar núna sem þyrfti að láta fara út af hinum ýmsu ástæðum. Í það fyrsta þarf að rýma fyrir þær sem að bera núna á næstu dögum en það er ekki erfitt að velja hverja myndu fara.
Þær sem eru svona efstar á svartalistanum eru þær:
 Skoruvík 454 Þengilsdóttir 05022, hún er nýbúin að stíga á spena og er því kolvitlaus að varla er hægt að mjólka hana, hún var nú ekkert skemmtileg fyrir.
 Hvítkolla 453 Þengilsdóttir 05022, hún er stórhættuleg í umgengni en meðan verið er að mjólka hana stendur hún kyrr en það þarf lítið til að hún verði brjáluð.
 Kotasæla 476 (f. hn. undan Skarp 03041), hún er skapstygg í mjöltum, fastmjólka og frumuhá þannig að hún er bara til vandræða.
 Thelma 488 Hersirsdóttir 97033 vegna júgurbólgu og því hún er svo fastmjólka og selur illa, hún er líka alltaf sparkandi í mann þegar maður reynir að tæma úr henni.
 Hekla 183 (f. hn. undan Vað 02011) hún er bara með júgurbólgu vesen í tveimur spenum en hún mjólkar mjög vel.
 Þóra 452 Moladóttir 05015, hún mjólkar svo lítið og er fastmjólka, en hún svona sleppur kanski þetta mjaltaskeið en fer svo líklega eftir næsta kálf.
 Auðhumla 464 (f. hn. undan Hvin 03032), vegna hárrar frumutölu frá síðasta burði en hún hefur verið yfir 3000 en lækkaði í síðustu sýnatöku niður í 100 en ef hún hækkar aftur svo hátt þá fer hún sem fyrst.
 Munkafríða 466 Gauksdóttir 05027, aðal ástæðan fyrir því eru lélegar afurðir og það gengur illa að halda henni, hún er líka trekkt á taug þannig að lítið þarf til þess að hún verði brjáluð.

Þetta er orðinn svolítið langur listi hjá mér þannig að ég hætti núna en ég vil benda á að helmingurinn af þessum kúm eru undan Stígssonum en þær eru ekki margar sem hafa reynst góðar undan þeim hér á bæ.

Læt þetta gott heita í dag.

Kv.
Ágúst





» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2011 21:41:17 / melsari

Heygjöf og aðrar gjafir

Sæl öll

Nú ætla ég mér að fjalla um hvernig heygjöfum og öðrum fóðugjöfum er háttað í fjósinu.
Í fjóshlöðuna eru settar inn 6 rúllur í einu, 2 - 3 daga fresti, fer eftir hvað þær endast.
Rúllurnar eru af hinum ýmsu gerðum svosem rýgresi eða öðru grænfóðri, nýræktum með vallarfoxgrasi, vallarsveifgrasi, svo af gömlum túnum og bygg. Reynt er að hafa þetta sem fjölbreyttast.
Við erum með gjafavagn sem saxar heyið og notum schäffer liðlétting til að setja í hann. Auk heysins skellum við völsuðu byggi saman við ofan í vagninn. Síðan er gefið gripunum.
Við gefum fóðurbætin úr hjólbörum fimm sinnum á dag en völsum byggi saman við í börurnar í eitt skiptið en þá er nautunum og mjólkurkálfunum gefið líka.
Í öðrum enda hlöðunnar eru elstu kvígurnar, nýfengnu kvígurnar og geldu kýrnar hafðar saman á hálmi og færanlegur fóðurgangur í miðjunni, svona nokkurskona gjafagrind. Sett er ein rúlla í hann sem dugar í 2-3 daga.
Fyrst ég er farinn að tala um aðstöðuna í hlöðunni þá er rétt að benda á það að hún er frekar slöpp og erfitt að hafa svæðið þurrt því þakið míg lekur ef það rignir og líka ef það þiðnar. Næsta stóra verk er því að breyta hlöðunni, en það verður vonandi gert snemma í vor svo það verði tilbúið fyrir haustið. Það sem verður þá gert er að setja yleiningar á alla hlöðuna, skipta um þak og setja glugga á mænin. En það er ekki það eina sem verður gert því það verður þá líka breytt aðstöðunni. Þá verður brotið upp gólfið í gryfjunni og haft djúpann haugkjallara en steypt gólf í endanum. Það verða þrjár rimlastíur öðru megin fyrir nautin, fóðurgangur í miðjunni en í endanum verður hálmsvæði og þeim megin sem fjósið verða rimlar líka, en þar verða þá elstu kvígurnar og geldkýrnar og verður líka hægt að hafa mjólkandi kýr.

Þá að kúnum sjálfum.
Það hefur lítið skeð síðan síðast en ég gleymdi þá að segja að hún Gríma 181 Halla Reynisdóttir (Vaðssonur) fór í kaupstaðinn 31. janúar, hún fór vegna júgurbólgu í einum spena og líka vegna lélegra afurða.
Kýrnar eru að mjólka frekar lítið en tvær standa þó uppúr. Þetta eru þær Venus 402 Skandalsdóttir 03034 og Teyja 415 Kútsdóttir 04018, nautsmóðirin okkar, þær eru báðar að mjólka 36 -37 kg á dag og á líklega eftir að aukast í þeim, flæðið í þeim er svona 2,0 lítrar ð meðaltali á mínútu. Fast á hæla þeirra er það svo hún Ára 438 Áradóttir 04043 sem er að mjólka 30 kg á dag, en meðalflæðið hjá henni er 4 lítrar á mínútu, en hún fékk 19 fyrir mjaltir þegar hún var dæmd.
Ég læt fylgja með mynd af henni Teyju 415, sem ég tók í dag.

Þetta er glæsileg kýr eins og móðir hennar. Bolinn undan henni sem fór á stöð heitir Nafni en ekki Frikki.

Skellti inn myndum af sex kúm í nýtt myndaalbúm sem heitir Kýrnar árið 2011.

Sæl að sinni

Ágúst


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  311  Alls: 125912
Leitarbox

Klukkan
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti